3 Mythological creatures of Iceland
Know Your Myths
huldufólk
Huldufólk eða álfar eru mjög lík venjulegu fólki, en Þau eru alltaf í gráum fötum og eru með svart hár.
þau eiga heima í náttúrunni og þau sína sig þegar þau vilja. Samkvæmt þjóðsögunum varð Huldufólk til á sama tíma og Adam og Eva. Adam og Eva földu skítugu og óhreinu börnin fyrir Guði en Guð sagði „Það sem manneskjan felur frá mér, fel ég frá þeim.“ Sumt Íslensk fólk eru hrædd við að kasta steinum, því það getur farið í Huldufólkið en í dag trúa eiginlega engin á þessi huldu fólk. Munurinn með Álfa og huldufólk er að, Álfar eru með marga galdra og eru hrein og alltaf í góðu skapi, en huldufólk eru bara ósýnileg, skítug og með þunglindi (Þunglindi parturinn er örugglega ekki sannur, held ég.) |
Nykur
hann er grár eða hvítur hestur sem fær fólk til að setjast á bak á sér og svo mun hann fara með þau út í á eða út í sjó og einhvern veginn drukkna þau.
Til að vita hvort hesturinn er Nykur þá þarf að athuga á honum eyrun og hófanna en þau snúa í öfuga átt miðað við venjulega hesta, það er á afturábak. Nykur vill að þú setjist á bak á honum en þegar þú sest á honum mun þú ekki geta farið af honum. Hann er alltaf í kringum vatn en ef þú segir nafn hans mun hann flýja. Það eru margar sögur um sambærilegar skepnur og Nykur í öðrum löndum. Í Skotlandi, Danmörku og Þýskalandi segja sögurnar að einhver vondur andi í vatninu hafi tekið yfir lík hestsins. Í Skotlandi er þessi vondi vatnaandi sem heitir Kelpie, Kelpie getur breytt sér í allskonar skepnur en birtist oftast sem hestur. Það er líka hljómsveit sem heitir Nykur, ef þið vildu vita það. |
Lagafljótsormurinn
Lagafljóts Ormurinn er svolítið svipaður Loch Ness skrímslinu. En í stað þess að vera stór risaeðla, þá er það risa ormur.
Lagafljóts ormurinn er bara eins nema hann er á Íslensku svæði. ég er alveg viss að þið vitið um orminn, en ef ekki, sagan er mest um einhverja stúlku sem missti galdra hring út í Lagarfljótið og einhver ormur snerti hann og svo stækkaði hann, og stækkaði og stækkaði og það er sagt að hann var kringum 25 metra langur. Það er líka myndband á netinu sem sínir orminn synda í Lagarfljótinu en það eru margir að segja að það sé „fake“ |